157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:28]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég get tekið undir með það — ég kalla þetta reyndar sirkusatriði en hann kallar þetta best heppnuðu almannatengslaaðgerð sem hefur verið farið í á pólitískum vettvangi í langan tíma. Ég ætla að minna hv. þingmann á að þetta voru 10.000 tillögur sem bárust þannig að það skorti ekki vilja þjóðarinnar á þessum tíma til að aðstoða ríkisstjórnina. Þess vegna hvet ég ríkisstjórnina núna til þess að kalla eftir aðstoð þjóðarinnar við að lækka skatta. Af hverju fer ekki ríkisstjórnin núna í svona almannatengslaátak og óskar eftir því að þjóðin veiti henni aðstoð við að lækka skatta, létta byrðarnar, létta hið daglega líf fólks í landinu?

Mig langar að spyrja hv. þingmann að öðru hér: Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á því að hæstv. fjármálaráðherra hafi brotið allar verklagsreglur hér í þinginu er hann laumaði inn vörugjöldum á ökutæki með breytingartillögu fjármála- og efnahagsráðuneytisins til efnahags- og viðskiptanefndar og kemur aldrei með frumvarp þess efnis að hann ætli að hækka vörugjöld á ökutæki? Og af hverju mælti fjármálaráðherra ekki fyrir þessu frumvarpi eða setti þetta í frumvarpið sitt?

Mig langar að spyrja hv. þingmann: Telur hann að hér sé fjármálaráðherra að brjóta þær meginverklagsreglur sem við höfum unnið eftir alla tíð hér í þinginu, þ.e. að veita eðlilegt svigrúm fyrir nefndina og fólkið í landinu (Forseti hringir.) til að tjá sig um svona viðamikið mál sem þessi skattahækkun ber með sér?