breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir fína ræðu, hvatningu til góðra vinnubragða og annað slíkt. Stór hluti hennar ræðu var um vinnubrögð og slíkt og auðvitað er ég sammála því að við þurfum alltaf að vanda okkur hvar sem við störfum, sérstaklega hér á þinginu. Ég vil líka fá að þakka henni fyrir gott samstarf í efnahags- og viðskiptanefnd, það hefur verið mjög málefnalegt og gott.
Mig langar aðeins að fá þingmanninn — og ég verð bara að fá að segja að auðvitað hefði verið betra að fá þessa tillögu um útfærslu á vörugjöldunum fyrr inn. Það hefði verið betra og ég segi það bara hér úr þessum stól. Ég sagði það líka í umræðunni á fimmtudag og föstudag að það hefði auðvitað verið betra að fá þetta inn strax í upphafi. En við fengum þetta inn í október, eitthvað í kringum 20. október ef ég man rétt. Við fengum fjölmargar umsagnir og við fengum gesti og áttum mjög góðar umræður í nefndinni um vörugjöldin og gerðum ýmsar breytingar sem ég tel að hafi verið af hinu góða þar sem við vorum kannski aðeins að jafna byrðarnar. Við hækkuðum gjaldið á vörugjöldunum og létum tengiltvinnbílana njóta þess, en tengiltvinnbílar eru, eins og hv. þingmaður veit, einn vinsælasti fjölskyldubíll landsins.
Mig langar í fyrsta lagi að spyrja hv. þingmann hvort hún telji ekki þessar breytingar vera til góðs, að við gerum þetta með þessum hætti. Mig langar líka aðeins að ræða við hana þessi fordæmi. Ég veit að hún er búin að starfa hér lengi, búin að vera forseti og búin að vera í forsætisnefnd. Nú eru mörg dæmi um þessi vinnubrögð á þinginu, til að mynda umrædd vinna við búvörulögin; hvort hún sjái eitthvert samhengi þar á milli. Ég myndi kannski ekki segja að þetta væru frábær vinnubrögð en það eru fjölmörg dæmi um þetta í þinginu. Af því að hv. þingmaður eyddi löngum tíma í ræðu sinni í að ræða vinnubrögð þá langaði mig að fá hana til að endurspegla vinnuna í kringum búvörulögin í samhengi við það sem við erum að gera núna.