breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar og hér gæti ég haldið mjög langa ræðu. Ég held að á þessum tveimur mínútum langi mig að svara þessu á þann hátt að í fyrsta lagi skiptir máli, og er eitthvað sem núverandi meiri hluti ætti að vera sér minnugur um, að allt það sem kemur frá ráðherrum eða ráðuneytum verður ekki sjálfkrafa að lögum eða þýðir ekki að meiri hluti þings sé á því að það eigi að verða að lögum. Þetta skiptir máli. Ráðherrar hafa í gegnum tíðina komið með alls konar hugmyndir og oft kannski líka bara til að sýna fram á sína pólitík og allt slíkt, þrátt fyrir að engin fullvissa hafi verið fyrir því að það yrði síðan að lögum. Ég vildi bara nefna þetta því að þetta skiptir máli. Mál verða ekki að lögum fyrr en eftir þrjár umræður á löggjafarþinginu.
Svo langar mig að segja annað: Það er eitt að taka eðlileg gjöld til að standa undir ákveðnum innviðum, einmitt af þeim sem nota þá þjónustu. Það er eitt. Núna er ekki verið að nota alla þá fjárhæð í þá innviði, svo að það sé sagt. Það er vel hægt að gera með því að taka þau gjöld sem nú eru tekin á dælunni, eins og sagt er. Það væri hægt að gera það áfram. Það væri hægt að láta það fylgja verðlagi en þó ekki með 3,7% hækkun, eins og núverandi meiri hluti er að gera, heldur frekar í verðbólgumarkmiðum Seðlabankans til þess að það verði ekki of íþyngjandi. Það er þegar búið að taka fyrir ákveðna ósanngirni í því þegar árin liðu, þ.e. þegar hreinorkubílarnir voru ekki að greiða fyrir vegina með sama hætti og aðrir bílar. Það er búið að taka fyrir þá ósanngirni í kerfinu. Það er alger óþarfi að fara í þessa umfangsmiklu og rándýru kerfisbreytingu með öllum þeim göllum sem þegar hefur verið farið yfir.