fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni framsöguna og get tekið undir það að ég tel að þetta mál sé til mikilla hagsbóta. Þetta er reyndar mál sem á að taka gildi núna 1. janúar og nú erum við komin fram í miðjan desember og erum að klára 2. umræðu um málið. En það vill nú svo til að hæstv. ráðherra kom með breytingu á fæðingarorlofslögunum hér inn á síðasta vorþingi. Þá lögðum ég og hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir fram breytingartillögu við það frumvarp um að gera nákvæmlega það sem stendur í þessu frumvarpi hér. Í ljósi þess að hv. þingmaður telur þetta til mikilla bóta þá velti ég fyrir mér af hverju hv. þingmaður studdi ekki þá breytingartillögu sem við lögðum fram og kom hér til atkvæðagreiðslu síðasta vor sem lét nákvæmlega að þessu og hefði þá tryggt þeim foreldrum sem eru í fæðingarorlofi vitneskju um það fyrir fram að þakið væri að hækka.