157. löggjafarþing — 47. fundur, 13. des. 2025.
fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
286. mál
Virðulegi forseti. Það er alveg rétt. Þetta frumvarp eins og það kemur núna var mikið rætt einmitt í nefndinni hjá okkur. En þar sem ekki voru til fjármunir fyrir því gátum við ekki samþykkt þetta því við viljum að fjármunir séu til staðar þegar við ákváðum að leggja fram útgjaldamikil frumvörp. En það er hárrétt og ég bara brýni að þetta var gott það sem þið komuð með og var svo sannarlega haft til hliðsjónar.