157. löggjafarþing — 47. fundur, 13. des. 2025.
fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
286. mál
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að fara að ræða hér um samning Sameinuðu þjóðanna sem löngu var búið að innleiða þannig að sveitarfélögin vissu alveg að hverju mátti ganga í því máli. Það er bara grátlegt hvað það voru margir sem ekki voru farnir að vinna eftir þeim innleiðingum, mörg sveitarfélög, því miður. En enn og aftur, þetta er fjármagnað og komið í gagnið og ég ætla bara að óska okkur til hamingju með það.