157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

286. mál
[16:48]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég sé að hér eru allir í jólahug og vilja endilega sameinast um að ná saman um góð mál. Sko, hv. þingmaður, ég gat þess sérstaklega þegar við lögðum fram breytingartillögu á síðasta þingi að þetta væri einmitt samhljóða breytingartillögu sem komið hafa frá þáverandi hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni sem nú er hæstv. ráðherra. Þess vegna var með eindæmum að hæstv. ráðherra felldi þá tillögu þegar hún kom þegar hann þó sat í ríkisstjórn. En ég er ekkert að rífast um það hvort ég eigi einhver mál eða ekki. Það var ekki punkturinn minn hérna. En þessi breytingartillaga var vissulega lögð fram hér á síðasta þingi og hún var felld af stjórnarmeirihlutanum. Stundum heyrast rökin að það hefðu ekki verið til fjármunir fyrir þessu eða það heyrast rökin að það hafi ekki verið hægt að útfæra þetta tæknilega, þetta væri ekki tæknilega tæk tillaga. Ég ætla bara að minna á það að tillagan var tekin hér til atkvæðagreiðslu, þannig að hún var tæk til atkvæðagreiðslu. Aftur á móti voru stjórnarliðar þá að nýta sér það að ráðgjöfin væri með einhverjum hætti, að það færi ekki alveg nógu vel á þessu, það hefði aðeins þurft að breyta þessu og aðeins þurft að laga þetta til. Ef það hefði verið til pólitískur vilji til staðar þá hefði hv. velferðarnefnd getað gert það því tillaga lá fyrir við 1. umræðu. Við alla umfjöllun í nefndinni hefði nefndinni verið leikur einn að gera þessa tillögu að sinni í nefndarálitinu, alveg eins og ég benti hér ítrekað á. Þegar kemur svo aftur að því að spyrja af hverju ég felldi breytingartillögu þáverandi hv. þm. Jóhanns Páls Jóhannssonar þá hef ég líka lýst því yfir að ég og hv. þingmaður unnum saman að því í velferðarnefnd að ná fram þeim breytingum um að það væri ekki litið til fæðingardags barns við fyrstu hækkun. Það birtist okkur hér inni í þinginu í atkvæðagreiðslu önnur tillaga frá þá hv. þingmanni sem nú er hæstv. ráðherra. Á þeim forsendum gat ég ekki samþykkt hana því hún hafði ekki fengið þá umræðu í nefndinni. Þá hefðu komið alls konar rök frá ráðuneytinu sem fannst þetta algerlega ómögulegt. Ég bara fagna því að það sé þá búið að fá ráðuneytið núna (Forseti hringir.) á þá skoðun að það sé hægt að miða réttindi ekki bara við fæðingardag barns heldur bara fyrir þá sem eru í orlofi. Okkur tókst fyrsta skref á síðasta kjörtímabili og við erum að halda áfram núna. (Forseti hringir.) Það er gott.