fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegur forseti. Það er gott að fá svona söguskýringu og innsýn í hvað gekk á á síðasta þingi. Það er einnig gleðilegt að við séum komin á þann stað að vera komin með ríkisstjórn sem klárar svona góð mál; að tryggja að öll börn eigi sama rétt óháð fæðingardegi, að ef þú átt inni réttinn þá færðu sömu réttindi og önnur börn óháð fæðingardegi. Þetta er afar góð breyting og ég er stoltur af því að tilheyra ríkisstjórn sem leggur fram svona mál og klárar þau hér á þingi. Það geta verið alls konar ástæður fyrir því að fyrri ríkisstjórn gerði það ekki. En við getum öll glaðst hér inni yfir því að nú sé ríkisstjórn sem klárar málið.