157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

286. mál
[16:52]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er náttúrlega bara hallærislegt. Í fyrsta lagi var það hækkun á þakinu sem var afgreidd af síðustu ríkisstjórn, sem er auðvitað stóra málið hérna. Þetta snýst um það hvenær réttindaávinnslan fæst, hvort hún miðist við fæðingardag barns eða bara allra sem eiga réttindi í orlofssjóðnum. Ég bara tek undir það, það er bara mjög gott mál að við séum búin að breyta því. Þetta var svolítið gufuskip sem þurfti að snúa við og það þurfti töluverðar fortölur til.

Ég sem þingmaður í stjórnarmeirihluta á síðasta kjörtímabili lagði mig fram við það að ná því í gegnum ríkisstjórnina, jafnvel þó að ráðuneytið segði eitthvað annað. Embættismenn í ráðuneytinu sáu þessu öllu til foráttu. Við fundum rök með málinu og við keyrðum í gegn. Það var fyrsta skrefið. Nú er sjónarmiðið í ráðuneytinu greinilega búið að snúast við. Það er gott, ég fagna því og ég fagna því að við getum unnið saman, óháð því hvort við séum í stjórn eða stjórnarandstöðu, að breyta slíku.

En bara vegna þess að hv. þingmaður talaði um að öll börn eigi sama rétt, það er reyndar ekki svo. Þessi réttindafærsla tengist auðvitað foreldrunum, ekki börnunum. Þess vegna er mjög áhugavert að lesa í nefndaráliti að nefndin hvetji ráðuneytið „til þess að vinna áfram að nauðsynlegum breytingum á kerfinu til hagsbóta fyrir foreldra“. Ég hef farið yfir það hér í löngum ræðum hvað við erum búin að ná miklu fram með breytingum á fæðingarorlofslöggjöfinni og hvað hún sé til mikillar fyrirmyndar. En það má alveg gera betur. Aftur á móti er alveg ljóst að hæstv. ráðherra og aðrir ráðherrar í ríkisstjórn eru ekkert sammála um það hvernig þeir vilji vinna þetta mál áfram og sást það langbest í kostulegu viðtali við hæstv. félagsmálaráðherra hér á sjónvarpsstöð í gær eða fyrradag.

En ég bíð bara spennt eftir því að sjá hvað hæstv. ráðherra kemur með meira í þessum pakka. Ég styð það að foreldrar hafi ríkan rétt til töku fæðingarorlofs og að við, hið opinbera, (Forseti hringir.) gerum allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja fjárhag fólks á meðan það er að standa í barneignum og sinna sínum börnum, ég tala nú ekki um þegar leikskólaþjónustan er eins og hún er hér.