fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna og hygg svo sem að hann þekki svarið því að ég veit að hann þekkir kerfið mjög vel. Það hefur auðvitað verið mjög mikil þróun í þessu kerfi á síðustu árum. Ég hef farið yfir það hér í ræðum að ég hef verið mjög stolt af því að taka þátt í því að lengja fæðingarorlofið. Ég sagði í þeirri umræðu að ég biði líka spennt eftir því að við gætum hækkað þakið því að mér finnst það mjög mikilvægt. Mér fannst það mjög mikilvægt skref sem við stigum hér á síðasta þingi að hækka þakið upp í 700.000 kr., 800.000 kr. og svo 900.000 kr. Þetta átti að taka gildi í þessum áföngum og síðasti áfanginn er nú um þessi áramót. Af hverju varð að miða við fæðingardag barns? Vegna þess að allar breytingar á þessu kerfi hafa alltaf miðað við fæðingardag barns og ráðuneytið hefur alltaf verið upptekið af því að það þurfi einhvers staðar að vera lagaskil, og það skiljum við jú. Þegar fæðingarorlofið var til að mynda lengt þá miðaðist það líka við fæðingardag barns í öllum tilfellum. Saga þessa kerfis er með þeim hætti að breytingar á löggjöfinni hafa miðað við fæðingardag barns. Þetta hefur alltaf tekið gildi um áramót þannig að það hefur verið mikið kapphlaup hvort barnið kæmi í heiminn 31. desember eða þú næðir að teygja það til 1. janúar þegar réttindin voru aukin.
Ég sé marga ókosti við þetta. Þar sem hv. þingmaður var hinum megin við borðið í síðustu kjarasamningum þá kemur þessi hækkun m.a. til vegna umræðu um kjarasamningana. Það er einmitt á þeim forsendum sem mér tókst að færa rök fyrir því hversu nauðsynlegt væri að hækkunin sem þá tók gildi ætti ekki bara við þá sem eignuðust börn eftir áramót heldur alla sem væru í fæðingarorlofi á þessum tíma því að þá var einmitt verið að tala um þessa kjarauppbót sem væri að eiga sér stað á kjarasamningunum og mér fannst eðlilegt að það færi líka yfir á þá sem væru að þiggja greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.
Ég segi því bara: Ég er glöð að við séum komin hingað núna og vona og treysti því auðvitað að hér eftir verði réttindagæslan eða réttindaávinningurinn ekki miðaður við fæðingardag barns heldur bara frá þeim tíma sem við segjum að lögin taki gildi. Þá njóta allir sem eru í fæðingarorlofi á þeim tíma þeirra réttinda.