fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Það er mikilvægt að horfa til þess núna að við erum að breyta því hvernig þetta kerfi hefur virkað. Við erum að tryggja foreldrum sömu greiðslur, sama hámark, fari þau yfir hámarkið, óháð því hvenær barnið fæðist. En það er rétt hjá hv. þingmanni að það hefur ekki verið þannig. Loksins er þá ríkisstjórnin að stíga það skref að breyta því fyrirkomulagi sem gerir þetta kerfi betra fyrir foreldra og skilvirkara og tryggir þar af leiðandi jafnari og meiri þátttöku beggja foreldra, að mínu mati, þegar að þessu kemur. Ég veit líka að við þurfum svolítið að rýna, eins og kemur fram í nefndarálitinu, kerfið áfram og reyna að gera breytingar og þróa það þannig að það virki betur. En stóru fréttirnar eru þær að við erum að breyta kerfinu á þann hátt að tryggja foreldrum sama hámark óháð fæðingardegi barns og síðan einnig gagnvart sorgarleyfislögunum.
Svo er það hinn punkturinn sem mig langar að koma inn á. Ég tek undir með hv. þingmanni varðandi það að umræðan þurfi að vera heiðarleg hér þegar við erum að ræða málefnin, ég held að það sé mikilvægt. En breytingartillagan sem kom fram síðasta vor náði ekki því markmiði sem við erum að koma fram núna. Hún náði ekki fram breytingum á sorgarleyfi og var ekki samsvarandi hvað varðar þessa hækkun til að tryggja rétt allra foreldra. Ég held því að það sé bara gott, og ég held að við séum sammála um það, að við séum að stíga þetta skref núna; að það sé verið að breyta þessum lögum og að það sé verið að vanda til verka. Ég held að það sé bara risastór dagur fyrir foreldra þegar þetta fer í gegn.