157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

286. mál
[17:01]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er hlynnt þessu máli. Ég ætla ekkert að tala það niður. En þessi ríkisstjórn er ekki að lengja fæðingarorlofið með þessu máli. Þessi ríkisstjórn er ekki að hækka þakið í greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði með þessu máli. Það sem er að gerast hér er að þetta verður óháð því hvenær börn fæðast, það eru ekki bara börn sem fæðast eftir 1. janúar, foreldrar þeirra, sem fara upp í þakið heldur líka þau sem fæddust kannski núna í desember, nóvember, október eða eitthvað slíkt. Það er breytingin. Við skulum því aðeins róa okkur í yfirlýsingum hér um stóru skrefin. En fréttin er aftur á móti sú að hv. þingmaður hefði getað sparað hæstv. ráðherra þessi spor, að fara með þetta frumvarp hér í gegn, með því að gera breytingu á því máli sem kom hér inn síðasta vor. Hv. þingmaður þekkir það líklega manna best, hafandi haft framsögu í því máli hér í þinginu, að það lá fyrir breytingartillaga sem hv. velferðarnefnd hefði vel getað gert að sinni. Ef hún hefði talið einhverja ambögu á henni hefði hún getað lagað hana. Það gekk meira að segja svo langt að ég stóð í þeirri góðu trú, eftir samtöl hér við marga stjórnarliða, að það yrði það sem yrði gert. En í þrjósku sinni í einhverjum samningaviðræðum út af einhverju allt öðru, veiðigjöldum eða einhverju slíku, þá treysti meiri hlutinn sér ekki til að gera þá tillögu að sinni og sjá þannig til þess að síðasta sumar hefði öllum foreldrum verið ljóst að þakið myndi hækka fyrir alla, óháð fæðingardegi barns. Það er það sem er að gerast akkúrat núna. Nú á síðustu metrunum er ríkisstjórnin þannig að bjarga sér fyrir horn með þessu frumvarpi sem vonandi verður afgreitt hér í næstu viku en hún hefði getað gert þetta síðasta vor hefði hún haft manndóm í sér til að standa við þá samninga og þau samtöl sem þá áttu sér stað.