157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

263. mál
[17:18]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Kristján Þórður Snæbjarnarson ) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir hans andsvar hér. Þetta er auðvitað mjög áhugaverð umræða og mikilvægt að fara yfir þetta. Varðandi þessa útskýringu á framleiðslukostnaði og heildarframleiðslukostnaði þá skiptir máli hvar kostnaðurinn verður til og hvort hann verði til hér á landi, innan EES-svæðisins eða á öðrum stað. Í raun og veru er mikilvægt að skýra það. Eins og ég kom inn á í máli mínu varðandi framkvæmdina á þessari útfærslu: Við erum ekki að breyta þeirri framkvæmd sem hefur verið við lýði heldur eingöngu að skýra þennan þátt í lögunum til að taka af allan vafa.

Umræðan, ef maður kemur inn á þetta, þá eins og kemur fram í umsögnum — það eru þrjár umsagnir sem komu um málið og eru mikilvægar. Það er ýmislegt sem þarf að horfa til. Ástæða þess að við leggjum til og hvetjum til þess að það verði farið í heildarendurskoðun er til þess að ná utan um þau verkefni sem verið er að fara í og til að styðja við þau. Eins og ég sagði áðan í ræðu minni þá er mikilvægt að við ýtum undir framleiðslu á efni og að það sé efni framleitt hér á Íslandi fyrir börn og ungmenni. Ég held að það skipti miklu máli að það sé nægt framboð af því. En það er kostnaðarsamara að framleiða það efni og við þurfum að beita okkur í því að ná betur utan um það.