157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

263. mál
[17:22]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Kristján Þórður Snæbjarnarson ) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans seinna andsvar. Varðandi kostnaðinn: Eins og kemur fram í 2. gr. laganna þá er verið að heimila endurgreiðslu úr ríkissjóði „hlutfall af framleiðslukostnaði sem til fellur við framleiðslu kvikmynda eða sjónvarpsefnis hér á landi“. Lögin í raun og veru fjalla um það og segir þar að ef meira en 80% af framleiðslukostnaði kvikmyndar falli til hér á landi eða innan EES-svæðisins þá sé heimilt að endurgreiðsla reiknist af þeim hluta. Án þess að ég sé mesti sérfræðingur í þessum lögum þá er það væntanlega vegna þeirra samninga sem við höfum gert og aðildar okkar að EES-samningnum sem skiptir okkur auðvitað gríðarlega miklu máli sem samfélag. Sá samningur hefur haft verulega jákvæð áhrif á íslenskt samfélag og okkur ber að verja hann. Við erum í raun og veru með þessum breytingum nefndarinnar að styrkja þessa grein og skýringar á þessari útfærslu eða staðfesta þá framkvæmd sem er við lýði.

Varðandi jafnvægið: Þessi grein er náttúrlega gríðarlega mikilvæg. Já, þetta er landkynning og getur skipt gríðarlega miklu máli og einnig fyrir íslenska menningu og þann stuðning. Mér finnst kannski erfitt að segja til um nákvæmlega einhvers konar jafnvægi og hvenær það næst. En ég held að það sé bara ágætis hugmynd og pæling að velta því fyrir sér. En við getum lagt meira til held ég og við þurfum að standa vörð um það sem við erum að gera í dag og reyna að efla það frekar en að fara að draga úr, alla vega að mínu viti.