157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

192. mál
[17:41]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir fyrirspurnina. Já, það er sem sagt réttur skilningur að nú sé þetta aðlögunartímabil í gildi út næsta ár, 2026. Staðan er sú að nú er mikil vinna í gangi við að tryggja áfram hagsmuni Íslands þegar kemur að samkeppnishæfni með einhvers konar áframhaldandi aðlögun. Sú vinna er í gangi, eins og ég segi, og ég veit að það er verið að leggja mikið púður í að tryggja að þessi sérstaða Íslands komi ekki niður á landinu þegar kemur að samkeppni, þannig að við sjáum vonandi eitthvað á næsta ári um áframhald á þessu máli.