157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

192. mál
[17:47]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég fann mig knúinn til að koma hér upp í ræðustól út af þessu þó að ég sé nú bara nýkominn að þessu frumvarpi í sjálfu sér, er ekki í hv. umhverfis- og samgöngunefnd en ég tel mig hafa vitað svo sem af þessu áður. Við erum, eins og ég orðaði það hér áðan, búin að finna skrímslið. Það er fundið. Skrímslið í skápnum er fundið. Þarna er um að ræða kerfið — við erum að innleiða enn þá meira núna, þarna er verið að létta stjórnskipulegum fyrirvara á einhverjum ákveðnum tilteknum gerðum Evrópusambandsins um losunarheimildir og hugsanlega eitthvað fleira, þannig að við erum á leiðinni inn í þetta kerfi sem leggur skyldur á þjóðir. Hluti af þessu kerfi eru þær skyldur þar sem við berum í raun þyngri byrði en aðrar þjóðir vegna þess að við búum hér úti í miðju Atlantshafi. Við búum fjarri öðrum þjóðum og við höfum enga möguleika á að ferðast til Evrópu t.d. nema með flugi eða með skipum. Þessi farartæki eyða auðvitað einhvers konar olíu á þessari leið og á það eru lagðar einhvers konar sektir sem við köllum hér í frumvarpinu kaup á losunarheimildum, þ.e. heimild til að losa, og þeim mun meira eftir því sem lengra er að fara ef ég átta mig á þessu. Við höfum ekki fengið nema hugsanlega þá tímabundna undanþágu hér á Íslandi og erum þarna á betliskóm í Brussel að reyna að fá einhverjar undanþágur. Þetta er náttúrlega móðgun, að vera komin þarna inn, að vera stödd í þessu umhverfi eins og ég sagði áðan. Við erum búin að mála okkur út í horn, búin að mála stofugólfið og við erum úti í horni, komumst ekki til baka, komumst ekki á salerni. Við erum búin að mála okkur út í horn og þurfum að biðja um að mega losa örlítið lengur. Þetta er afleit staða, frú forseti.

Auðvitað veit ég að núverandi stjórnvöld eiga ekki sök á þessu, við höfum haft hér stjórnvöld áður og leiðst inn í þetta kerfi sem er raunverulega slæmt fyrir íslensk fyrirtæki og fyrir Ísland í heild vegna þess í hvaða stöðu við erum hér úti í miðju Atlantshafi. Ég myndi segja, án þess að ég þekki nákvæmlega hvaða gerðir þetta eru, að við verðum auðvitað að taka til harkalegra varna til að vera ekki leidd þarna á þennan aftökupall sem þarna er, að við getum ekki flogið hér á milli landa eða siglt án einhvers konar sektargreiðslna fyrir það. Það gengur auðvitað ekki, frú forseti. En með tilliti til þess hverjir eru í stjórn núna, þ.e. flokkar — hluti stjórnarinnar er samsettur úr flokkum sem vilja ekkert frekar en að ganga inn í Evrópusambandið og inn í þetta og eru mjög feimin við að rétta upp hönd og segja: Heyrðu, er ekki eitthvað þarna sem við þurfum hugsanlega ekki að gangast undir út af okkar stöðu? Við höfum verið feimin við það. Það eru ekki bara þessi stjórnvöld, það eru stjórnvöld síðustu ára og jafnvel áratuga. Við höfum ekki nýtt okkur það að standa upp og standa í lappirnar gagnvart okkar landi, sérstöðu þess á margan hátt, eins og ég hef nefnt hér, þó ekki væri nema það að við erum eyja úti í Norður-Atlantshafi.

Ég sé það, frú forseti, að nefndarálitið er undirritað af þingmönnum meiri hlutans og þingmenn minni hlutans eru ekki þar á. Ég tók ekki eftir því hvort það væri sérstakt nefndarálit frá minni hlutanum, ekki sá ég það. Ég verð þá bara leiðréttur um það. En auðvitað verður að taka til harkalegra varna og ég brýni meiri hlutann, stjórnina, að reyna að koma í veg fyrir þetta þannig að við getum rekið flugfélög og skipafélög án þess að vera einhverjir sakamenn í einhverri losun til að komast á milli landa, standa í lappirnar fyrir landið. — Ég læt þetta duga í bili.