viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Já, við höfum nefnilega staðið okkur afburðavel hvað varðar umhverfismál. Við höfum staðið okkur svo vel, frú forseti, að við erum heimsmeistarar. Nær öll orka á Íslandi kemur úr fallvötnum og restin kemur úr heita vatninu. Við hitum næstum öll híbýli á Íslandi með heitu vatni sem fæst úr iðrum jarðar. Við lýsum upp húsin okkar og bræðum málma með orku sem fæst úr fallvötnunum. Það er engin þjóð í veröldinni sem er að gera þetta jafn vel og við. Þess vegna eru það auðvitað vonbrigði ef fulltrúar Íslands í Brussel — eða hvar sem það nú er sem þau skrifa undir svona afleidda samninga um það að skip og flugvélar frá Íslandi þurfi að greiða einhverjar sektir fyrir það að fljúga á milli Evrópu og Íslands, eða hvert sem þau eru að fara, einhverjar sérstakar sektir. Eðlilega eyða þau meira eldsneyti á þessum lengri leiðum. En þetta er okkar leið til að komast út. Það er auðvitað afleitt að heimsmeistararnir sjálfir þurfi að greiða sektir fyrir að standa sig ekki nógu vel. Það er auðvitað augljóst.