157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

192. mál
[17:58]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innlegg sitt þó að hv. þingmaður hafi kannski ekki svarað spurningunni sem var sú hvort hv. þingmaður teldi leiðina færa án þess að segja sig úr EES-samstarfi sem hefur verið í umræðunni í samhengi við orðræðu flokksins að undanförnu. Ég inni hann eftir svari við þeirri spurningu áfram. En ég get tekið undir það að Ísland er með einstaka stöðu þegar kemur að orkumálum. Í raun og veru er regluverk Evrópusambandsins, sem snýr að orkumálum, ekki hannað fyrir þær aðstæður og ekki endilega með hvata sem eru miðaðir við þær aðstæður hér á landi. Það er mikilvægt að horfa á það að fá sérlausnir. Það þarf að gera betur á því sviði, það er engin spurning. Við þurfum að horfa á það að fá framlengingu og helst varanlega sérlausn því aðstæður hér á landi, miðað við okkar landfræðilegu legu, eru aðrar og það þarf að vera sanngirni í þessum málum.

En til viðbótar við fyrri spurningu þá langar mig til að spyrja hv. þingmann: 85% af okkar frumorkunotkun er frá endurnýjanlegum orkugjöfum og það eru tækifæri til að ná lengra og tæknin er lengst komin þegar kemur að bílaflotanum okkar. Þó að það tengist kannski ekki beint þessu frumvarpi, er hv. þingmaður hlynntur því að við hvetjum til áframhaldandi orkuskipta? Ekki endilega í samhengi við losun, þótt það geti auðvitað haft gríðarlega jákvæð áhrif á umhverfið, heldur í samhengi við orkuöryggi; að við séum að nýta innlenda orkugjafa til að knýja okkar ökutæki.