viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir hennar síðari spurningar sem voru nokkrar. Ég held, og ég hef nú trú á því ef ég svara spurningunni sem hún endurtók, að við höfum möguleika samkvæmt EES-samningnum á að taka þar upp samræður af miklu meiri krafti heldur en við höfum gert hingað til. Við bentum á þetta hvað varðar orkupakka þrjú hér fyrir nokkrum árum. Menn voru eitthvað feimnir við að krefjast þess að fá þar einhvers konar undanþágur. Í þessu máli, umhverfismálum, þessum losunarmálum, hefur greinilega verið sofnað aftur á verðinum. Við erum alltaf sofandi á þessum fundum. Við erum ekki að gæta hagsmuna Íslands. Tilgangur minnar ræðu hér er kannski sá að vekja fólk aðeins til umhugsunar um að reyna að gæta hagsmuna Íslands af alefli, ekki bara af einhverri sýndarmennsku. Ég tel að við eigum í sameiginlegu EES-nefndinni að taka svona mál og fleiri mál upp til endurskoðunar. Kannski var það í grunninn það sem hv. þingmaður flutti hér áðan, að við ætluðum að vinna í þessum málum og sannarlega vona ég að við gerum það. Auðvitað er þetta flókið, það er ekki fyrir nokkurn mann að skilja þetta ETS-kerfi. Menn eiga bara að vita hvað þetta er. Menn koma endalaust með einhverjar skammstafanir; CBAM-kerfið og menn eiga bara að vita hvað þetta er. Ég skil það kannski ef menn eru steinsofandi á fundum yfir öllum þessum skammstöfunum. En menn verða að gæta hagsmuna Íslands hvernig sem því er háttað, hv. þingmaður. Og hv. þingmaður getur líka fengið það svar að Miðflokkurinn vill efla alþjóðlega samvinnu en við verðum líka að gæta hagsmuna Íslands þar.