157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

hagstjórn og horfur í efnahagsmálum.

[10:41]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Hagstjórn er flókið mál og erfitt. Þó eru sumar reglur sem hægt er að innleiða og gera gagn. Hægt er að læra af reynslunni. Eitt af því er t.d. að átta sig á því að skattahækkanir skila sér ekki alltaf í auknum tekjum til ríkisins; Laffer-kúrfan svokallaða sem hæstv. forsætisráðherra hefur kannski einhvern tímann heyrt um. Það verður að segjast eins og er að hagstjórn gengur afleitlega hjá þessari ríkisstjórn. Þótt hún kvarti mikið yfir síðustu ríkisstjórn, sem ég hef í sjálfu sér skilning á, er stórundarlegt, í ljósi þess að stjórnin gerir sér grein fyrir því hversu slæm sú síðasta var, að hún haldi áfram á sömu braut og geri meira af því sama, meira af þeim mistökum sem reyndust illa á síðasta kjörtímabili. Það er svolítið erfitt að gagnrýna forverann þegar gert er meira af því sama og hann og enn þá stærri mistök. Nú hefur þegar komið á daginn, þótt ekki sé búið að klára fjárlagavinnuna, að fjárlög munu ekki standast. Það á ekki hvað síst við um skattahækkanirnar. Það liggur fyrir að vörugjöldin sem áttu að skila 7,5 milljörðum í ríkissjóð munu ekki gera það og á heildina litið gætu áhrifin orðið neikvæð. Þau munu a.m.k. ekki skila því sem til var ætlast. Það sama á við um veiðigjöldin. Það er meira að segja viðurkennt af hálfu fjármálaráðuneytisins að áformin um auknar tekjur vegna veiðigjalda munu ekki ganga eftir. Hvert atriðið af öðru fellur um sjálft sig og það áður en þau eru komin til framkvæmda. Það er vegna þess að það vantar heildarsýnina, það vantar heildarmyndina frá þessari ríkisstjórn sem kastar fram frösum og svo vanhugsuðum hugmyndum sem skila ekki tilætluðum ávinningi. En þótt hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórn hans hafi reynst erfitt að læra af reynslu annarra, mun hæstv. ráðherra læra af eigin reynslu? Getum við átt von á breyttum áherslum, jafnvel núna við þessa fjárlagavinnu? (Forseti hringir.) Að minnsta kosti langar mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hann sé reiðubúinn að gefa hér nýársheit um það að læra af reynslunni og reyna að haga hagstjórn betur á Íslandi á nýju ári.