157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

hagstjórn og horfur í efnahagsmálum.

[10:43]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Já, það sagði enginn að þetta yrði auðvelt. Sú reynsla sem við verðum að taka til okkar er að fylgjast með stjórnvöldum í áraraðir segja við fólk það sem það vill heyra í staðinn fyrir að framkvæma. Það er einfaldlega þannig að ef þarf að taka erfiðar ákvarðanir er betra að ráðast í þá ákvarðanatöku strax. Þetta er ástæðan fyrir því að við erum að helminga hallann núna á fyrsta árinu. Þetta er ástæðan fyrir því að við erum að klára t.d. kílómetragjöldin, t.d. ákveðnar fjármögnunarleiðir sem snúa að vegakerfinu; vegna þess að fyrri ríkisstjórn tókst ekki að gera það, vegna þess að hún hafði ekki kjark til að breyta um kúrs. Það þarf kjark til að breyta um kúrs, það er stundum óvinsælt en við erum tilbúin að gera það. Hv. þingmaður þekkir það vel vegna þess að hann er oft að tala um kjark til að taka erfiðar ákvarðanir.

Við erum að sjá lægstu verðbólgu í fimm ár. Við erum að sjá 1,75% í vaxtalækkun. Við erum að sjá helmingun á halla. Við erum að sjá skuldir lækka um 7,5% vegna þess að það er búið að ráðast hér í fjárhagslegt uppgjör sem hefur ekki tekist að gera í áraraðir. Allt þetta skiptir máli. Við erum líka að sjá breyttar áherslur þegar kemur að fjármögnun ríkissjóðs þar sem fjárfestingin er sérstaklega tekin út fyrir sviga, t.d. í stöðugleikareglunni, til að tryggja það að við skerum ekki alltaf niður í fjárfestingu til að púkka upp á rekstrargjöldin eins og síðasta ríkisstjórn gerði reglulega. Að því leytinu til erum við að læra af reynslunni.

Ég get ekki tekið undir það sem hv. þingmaður segir varðandi það að ýmsar breytingar sem hafa verið gerðar á vakt þessarar ríkisstjórnar standist enga skoðun. Tökum sem dæmi veiðigjöldin. Það var nú heldur betur mikið gert úr þeirri umræðu í sumar. Og hvað gerði ríkisstjórnin? Jú, hún brást við. Hún hlustaði til að mynda á sveitarfélög sem hafa verið með mikla hagsmuni af sjávarútvegi. Það var brugðist við með frítekjumarki. Það var brugðist við með 85% innleiðingu. Já, það lækkaði tekjurnar um u.þ.b. 2 milljarða vegna þess að við hlustum. (Forseti hringir.) Og hér hlær fólk að aðgerðum sem það grátbað um hér í salnum í vor. Við bregðumst við, við hlustum og við getum fyllilega mætt því. Við höfum forgangsraðað til að loka gatinu.