hagstjórn og horfur í efnahagsmálum.
Frú forseti. Eitt var rétt sem hæstv. forsætisráðherra sagði, og það strax í byrjun, að núverandi ríkisstjórn hefði lært af reynslu þeirra síðustu og hæstv. ráðherra rakti það að sú síðasta hefði alltaf sagt eitt og svo gert eitthvað annað. Af því hefur núverandi hæstv. ríkisstjórn sannarlega lært en ekki á þann hátt sem maður hefði viljað. Hún hefur í þessu eins og svo mörgu öðru gert meira af því sama. Svo kemur hæstv. ráðherra hér upp og heldur áfram — nú ætla ég að nota orð, frú forseti, sem ég hef ekki fengið tækifæri til að nýta áður en er mjög vinsælt orð — að gaslýsa almenning og Alþingi til að mynda með þessum endurteknu fullyrðingum um að þessi ríkisstjórn hafi orðið til þess að skattar hafi lækkað fimm sinnum og tekur þar með í reikninginn vaxtalækkanir sem urðu áður en þessi ríkisstjórn tók við, áður en kosningar voru haldnar og eignar sér það. Eignar sér eitt og annað gott úr fortíðinni en gengst ekki við neinu af eigin mistökum. Ég ítreka spurninguna: Getur hæstv. forsætisráðherra veitt okkur á Alþingi nýársheit um að gera betur í hagstjórn á nýju ári?