157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

forgangsröðun ríkisstjórnarinnar.

[10:57]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég held að við hljótum öll hér inni að geta verið sammála um að það er auðvitað óásættanlegt ástand víða í kerfinu þar sem ungmenni fá ekki þjónustu sem þau ættu að fá. Ég hygg að við séum öll sammála hér inni um að það þurfi að gera betur og ég hygg að við getum öll tekið undir með að það er langt síðan þessi vandi fór af stað og þrátt fyrir að þessi ríkisstjórn sé auðvitað með þann ábyrgðarhluta, þá erum við sammála um þennan vanda. Það hafa verið tekin skref sem snúa að neyðarviðbragði til að styrkja m.a. meðferðarúrræði í sumar til að tryggja að þau yrðu ekki lokuð yfir sumartímann. Það voru líka stigin skref núna við vinnslu fjárlaga til að setja viðbótarfjármagn inn í umrædd úrræði. Ég get hins vegar alveg tekið undir að það þarf að gera meira. Við þurfum að vinna að forvörnum fyrst og fremst. Við getum ekki bara verið að slökkva elda. Það er vissulega verið að vinna í því að styrkja umrædd úrræði. Þetta snýr ekki bara að uppbyggingu úrræðanna sjálfra heldur líka tegund meðferðarinnar. Þetta eru viðkvæm mál sem við getum ekki hlaupið af stað með en er verið að vinna af yfirvegun í ráðuneytinu. En ég skil vel að fólk sé óþolinmótt, það erum við öll í ríkisstjórninni líka. (Gripið fram í.) Ég bið okkur hins vegar um að tala af yfirvegun og virðingu um þennan málaflokk. Við tókum í upphafi árs yfir málaflokk barna með fjölþættan vanda frá sveitarfélögunum, sem hefur verið þungur baggi á þeim, með þá von í brjósti að þau hefðu meira svigrúm til að sinna fyrsta og annars stigs þjónustu en við tökum þetta til okkar og við vitum af áskorununum.