157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

forgangsröðun ríkisstjórnarinnar.

[11:00]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Svarið kom að sjálfsögðu ekki enda virðist vera algjört áhuga- og metnaðarleysi í þessum málaflokki. Mig langar að almenningur og alþjóð viti það að hér í salnum kallaði þingflokksformaður Viðreisnar, hv. þm. Sigmar Guðmundsson, umræðu mína lágpunkt í þinginu. Þannig að almenningur viti að hér er gjammað fram í af fólki sem þykir það þannig. Mér finnst, og segi það bara við hæstv. forsætisráðherra, frú forseti, að hér sé alger afhjúpun í gangi. Hér er faraldur í gangi; börn og ungmenni eru að deyja á þeim tíma sem ríkisstjórnin hefur verið við störf og forsætisráðherra hefur ekki hugmynd um neina tölu, hvað er í gangi þar. Á meðan við vorum í Covid-faraldri voru daglegar upplýsingar um það hvernig staðan var. Þetta er grafalvarlegt mál. Til að ítreka það: Á tíu dögum var hægt að byggja upp Covid-úrræði sem var sértækt og sérhæft. Tíu dagar. Ríkisstjórnin er búin að vera í ár (Forseti hringir.) að vinna núna og er í raun með allt niðrum sig í þessum málum. Hér eru börn (Forseti hringir.) um allt samfélagið sem eiga bágt. Við erum að fara inn í jólatímann (Forseti hringir.) og ég legg til að hæstv. forsætisráðherra skoði þessi mál betur en einhver excel-skjöl.