157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

tekjuforsendur fjárlaga.

[11:03]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að eiga orðastað við fjármála- og efnahagsráðherra varðandi fjárlögin og í raun tekjuforsendur fjárlaga eins og þau birtast okkur, bæði í fjárlaganefnd og í efnahags- og viðskiptanefnd. Í síðasta minnisblaði sem við fengum var sagt að tekjur væru að lækka um 6 milljarða og gjöldin um 5,3 þannig að gatið er að aukast um 700. En stöðugleikareglan, virðulegur forseti, sem var í 28 millj. kr. plús, fer í 15. Stöðugleikareglan hangir á 15 millj. kr.

Við sjáum að tekjuskattur lögaðila á að hækka á næsta ári þrátt fyrir að hann sé ekki að skila sér að fullu nú seinni hluta árs. Við sjáum vörugjöld upp á 7,5 milljarða sem eiga að skila sér þrátt fyrir að innflutningur bíla sé að vaxa verulega og bílasalar og bílaleigur hafa staðfest það við okkur í nefndinni. Veiðigjöldin eru að lækka um 6,7 milljarða og nú á að auka tekjur ríkissjóðs, og það kemur bara inn á milli umræðna, um 1,1 milljarð út af betri heimtum ríkisskattstjóra. Það virðist vera, virðulegur forseti, að þarna séu menn á afar hæpnum forsendum á mjög mörgum stöðum. Því vil ég spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvort hann deili ekki þeim áhyggjum með þeim sem hér stendur að miðað við þessar forsendur sé afar hæpið að stöðugleikareglan muni halda.