úrræði fyrir börn með fíknivanda.
Frú forseti. Mér finnst full ástæða til að koma hér upp undir þessum lið til að brýna okkur til dáða þegar kemur að því að grípa til aðgerða vegna þeirra sem eru að látast úr fíknisjúkdómi. Það hafa rúmlega 100 manns, á milli 100 og 200 manns látist úr þessum sjúkdómi núna á ári, mörg ár aftur í tímann. Ég er ekkert endilega viss um að það sé heppilegt að við í þessum sal förum að miða þetta sérstaklega við tiltekin kjörtímabil eða algerlega hengja dauðsföll á tilteknu tímabili á tiltekna stjórnmálamenn eins og hér var látið að liggja áðan. Það hefur verið ágætissamstaða í þessum sal þvert á flokka að gera betur heldur en við höfum gert. Það er verið að vinna eftir því að gera það. Það var farið yfir það hérna áðan að fyrsta skrefið var til að mynda að láta ekki loka meðferðarúrræðum. Mig langar bara til að brýna þingheim til þess að nota nú allt sem við eigum í vopnabúrinu til að gera ofur einfaldlega betur. (Forseti hringir.) Við munum aldrei geta komið í veg fyrir öll dauðsföll því þetta er ólæknandi og mjög alvarlegur sjúkdómur. En betur getum við gert. Það að vera með sakbendingar á milli stjórnar og stjórnarandstöðu hjálpar ekki. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)
(Forseti (EÁs): Forseti vill taka fram að ræðutími er ein mínúta í þessum lið.)