157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

úrræði fyrir börn með fíknivanda.

[11:13]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Auðvitað er þetta sannarlega mál sem við erum að ræða í fundarstjórn sem snýr að tilfinningum, ég veit það og við vitum það öll hér. Að sjálfsögðu viljum við búa sem best í haginn fyrir þau sem verða fíkniefnum að bráð. Ég held að það eigi við um okkur öll og ég er sammála því að við skulum gæta orða okkar hvað það varðar. Það eru vonbrigði að hæstv. forsætisráðherra hafi ákveðið að sitja ekki undir þessari umræðu, það hefði verið gott ef hún væri hér. Ég vil líka minna á það að á undanförnum þingum hafa aðilar tekið til máls með sambærilegum hætti og var rætt áðan, til þess að brýna þáverandi ríkisstjórn með góðu eða illu til góðra verka. Við erum sammála um að það er mikilvægt að við sinnum þessum góðu verkum og við leggjum auðvitað allt okkar í það að ná fram einhverri bót í þessu. Eins og hér var sagt þá munum við auðvitað ekki koma í veg fyrir að það verði dauðsföll en við getum gert allt sem í okkar valdi stendur til að lágmarka þau.