skattar, tollar og gjöld.
Virðulegur forseti. Þetta er eitt af þessum málum þar sem titill málsins er kannski ekki beint lýsandi fyrir það sem skiptir helst máli í þessu frumvarpi. Málið fjallar ekki nema að hluta og kannski ómerkilegum hluta um peningaþvætti eins og heitið gefur til kynna, heldur var þarna verið að reyna að lauma inn heimild fyrir ríkisskattstjóra til þess að endurgreiða ekki ofgreidda skatta þegar fyrir liggur dómur eða úrskurður yfirskattanefndar um að ekki hafi verið lagaleg heimild fyrir slíkri skattlagningu.
Það er með nokkrum ólíkindum, virðulegur forseti, að hér hafi menn verið að þráast við að halda því fram að frumvarpið sneri ekki að því heldur væri einhver mikil réttarbót fyrir einstaklinga og heimili í landinu og það sé ekki hér fyrr en við lok málsins, við 3. umræðu, að menn sjái sæng sína upp reidda og leggi fram breytingartillögu sem var kallað eftir nánast frá upphafi eða þegar mönnum varð þetta ljóst, breytingartillögu sem Miðflokkurinn mun styðja og kemur í veg fyrir að ríkisskattstjóri fái þessa fráleitu heimild.