kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Vörugjöldin sem hafa verið við lýði á rafmagns- og vetnisbíla undanfarið ár eru ekki hafin yfir vafa. Það hefur ekki verið hnökralaust. Einkum og sér í lagi í því ljósi er ansi bratt að ætla að fara að taka upp nýtt kerfi fyrir allan þorra bifreiða á landinu eins og lagt er til með þessu frumvarpi. Miðflokkurinn leggst gegn málinu í heild sinni en hefur hins vegar bent á að það gæti tekið gildi með frestaðri gildistöku um eitt ár þannig að fyrirsjáanleikinn væri meiri og er í rauninni lágmarksfyrirsjáanleiki þegar svona stórt kerfi er tekið upp. Ríkisstjórninni væri í lófa lagið að fresta gildistökunni í þessu máli sem var kynnt sem tekjuhlutlaust en kemur í ljós að felur í sér 3,5 milljarða kr. skattahækkun á bifreiðaeigendur og heimilin í landinu. Miðflokkurinn mun ekki styðja þetta mál en leggur fram frávísunartillögu og breytingartillögu um gildistöku.