157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[13:50]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við erum hér að fara að klára að innleiða nýtt tekjuöflunarfyrirkomulag ríkisins til að standa undir vegakerfinu sem við köllum kílómetragjald. Þetta er vegferð sem hófst árið 2023. Þetta er stórt skref í átt að sjálfbærri, sanngjarnari og gegnsærri skattlagningu á ökutæki og umferð á Íslandi. Þetta er gert til að tryggja stöðugar tekjur til vegakerfisins í ljósi hraðrar þróunar í orkuskiptum og breyttum samgöngum. Þeir borga sem nota eða þeir borga sem slíta vegunum. Það kostar að viðhalda vegakerfinu og ráðast í samgöngubætur öllu samfélaginu til góða. Tekjustofnar ríkisins sem eiga að standa undir vegakerfinu hafa rýrnað verulega og hefur innviðaskuldin í vegakerfinu margfaldast og er nú metin á þriðja hundrað milljarða króna. Er krefjandi að innleiða stórar breytingar? Já. Ætlum við að gera það? Já. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )