kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Hér stendur til að fleyta máli áfram milli umræðna sem hefur fengið einna ítarlegustu og mestu gagnrýni sem fyrir þessu þingi liggur. Umsagnir um málið eru nánast allar á eina lund, þ.e. neikvæð áhrif, bæði á venjulegt fólk og atvinnulífið. Þetta er flækjufrumvarp. Miðað við tekjur sem þetta frumvarp á að skila þá er þetta ótrúlega dýr leið til að sækja slíkar tekjur því að umsýslan og reksturinn á því eftirlits- og innheimtukerfi sem þarf til verður stór hluti þess sem á að innheimta. Miðflokkurinn getur ekki samþykkt svona vinnubrögð og mun leggjast gegn þessu, enda stendur hann vörð um hagsmuni landsbyggðarinnar.