157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[13:53]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta mál hefur verið lengi í undirbúningi og fengið víðtæka umræðu, bæði í þingsal og í hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Ég þakka öllum sem komu á fund nefndarinnar en líka þeim þingmönnum sem tóku þátt í umræðum hér og í afgreiðslu málsins. Stærsta breytingin sem almenningur mun taka eftir, nú um áramótin þegar þessi lög taka gildi, er að verð á dælu mun auðvitað taka dýfu og við fáum í staðinn nýtt kerfi, að mínu mati sanngjarnara og nútímalegra kerfi, til að fjármagna rekstur á samgöngukerfinu okkar. Þingflokkur Viðreisnar mun styðja þetta mál og leggjast gegn bæði frávísun þess og frestun á gildistöku.