157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:03]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við hv. þingmenn meiri hlutans og hæstv. ráðherra vil ég segja að kapp er best með forsjá. Nú er verið að reyna að hysja upp um sig hér, það liggur svo mikið á, til að reyna að standa undir nafni sem einhvers konar verkstjórn; eitthvað sem hefur allt aðra skilgreiningu í hugum fólks í meiri hlutanum hér heldur en hjá þeim sem þekkja til verklegra verka og gangs í þeim. Svo mikið liggur á, virðulegur forseti, að þrátt fyrir öflug viðvörunarorð, þrátt fyrir að menn viti að það eru aðrar leiðir í boði, miklu einfaldari og skilvirkari, þá skal þetta kýlt í gegn bara til að ná einhverjum milljörðum í kassann. Það er betra að vanda til verka, virðulegur forseti. Það er mikilvægt að við vöndum til verka á hinu hv. Alþingi. Við erum ítrekað búin að fá tilmæli um það við lagagerðina. Ég legg til að þetta mál verði kallað til baka. Í sátt og samlyndi, og í stórri sátt hér í þinginu, er hægt að vinna miklu betri útfærslu á þessum málum, miklu skilvirkari og betri fyrir land og þjóð.