157. löggjafarþing — 48. fundur, 15. des. 2025.
kílómetragjald á ökutæki.
144. mál
Frú forseti. Við höfum alltaf greitt miklu meira í skatta af ökutækjum en við höfum nýtt til að byggja upp samgöngukerfið. Þess vegna heldur þessi rökstuðningur, að þessi skattur verði að koma til til að halda áfram þeirri uppbyggingu, bara ekki vatni og langur vegur frá því. Mig langar, frú forseti, að gera það að tillögu minni, í ljósi þess hversu mjög vel rökstudd gagnrýnin hefur verið, að þetta mál gangi til hv. efnahags- og viðskiptanefndar milli 2. og 3. umræðu.