kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég styð þetta mál. Á alla mælikvarða hefur það verið að gerast á undanförnum árum og áratugum að við erum að verja minna í vegaframkvæmdir og samgöngubætur og þeir tekjustofnar sem við höfum haft til þess hafa verið að dragast verulega saman. Ég ætla líka að hrósa Framsóknarflokknum sem kemur hér upp og trúir okkur fyrir því að hann hafi nú staðið fyrir því á sínum tíma að leggja fram einhverja slíka breytingu þótt hann sé ósáttur við útfærsluna. En ég vil leyfa mér að gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að hugmyndum um þetta var fyrst hreyft árið 2023, svo að því sé bara haldið til haga.
Fyrirsjáanleikinn felst í því að það er búið að leggja þetta mál fram oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Það sem hv. þm. Karl Gauti Hjaltason nefndi hér er einmitt kjarni málsins. Það er verið að fjölga þeim sem greiða. Og af hverju er það? Það er vegna þess að við erum að búa til sanngjarnara kerfi þar sem fleiri sem nota vegina greiða. Þeir sem nota vegina greiða. Og eigum við síðan að gleyma því að nefna, eins og mér finnst menn gera, hvað gerist á dælunni þegar þetta verður að lögum? Jú, eldsneytisverð lækkar. Ég styð þetta mál heils hugar. [Kliður í þingsal.]
(Forseti (ÞSv): Forseti biður um hljóð í salinn.)