157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:15]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það er því miður ekkert nýtt í málflutningi hæstv. ríkisstjórnar og hv. stjórnarmeirihluta að það sem er hugarburður ráðherra, sem jafnvel kemur fram í frumvörpum til þings, jafngildi lögum í þessu landi. Svo er ekki. Það að hugmyndum ráðherra eða frumvörpum sé komið hingað inn og þeim sé hafnað er alvöruaðgerð á löggjafarþinginu. Það er alvarlegt að það sé skautað yfir það hér að frumvarpi því sem hefur áður komið til umræðu í einhvers konar sambærilegri mynd, þótt það sé of langt mál að fara nákvæmlega yfir það hvað hefur breyst eða hver hugmyndin hafi verið á sínum tíma, hafi verið hafnað. Því var hafnað. Þetta mál er óþarflega flókið. Það er engin ástæða fyrir því að gera þetta með þessum hætti. Það eru átta vinnudagar þar til þetta á að taka gildi. Ferðaþjónustan hefur sagt mjög hátt og skýrt að hún muni ekki þola þetta. (Forseti hringir.) Hér er verið að gera þessi mistök með galopin augun á sama tíma og (Forseti hringir.) mikið er verið að tala um skattinn á skemmtiferðaskipin, sem var vissulega settur á; mistök sem voru gerð í starfsstjórn í miðri kosningabaráttu á harðahlaupum. Enginn veitti nein andmæli hér í þessum sal, (Forseti hringir.) og þetta voru mistök. Munurinn er sá að núna er ríkisstjórnin að gera nákvæmlega sömu mistök með opin augu.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir þingmenn á að virða ræðutíma.)