157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:17]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér erum við með vont mál í meðförum þingsins. Hvað sem á undan hefur gengið er staðan sú í dag að hér erum við að fjalla um þetta mál. Það er alveg ljóst, frú forseti, að heildarskattspor fyrir og eftir, ef þetta verður að lögum, mun minnka. Ferðaþjónustan mun dragast saman eins og segull hér á suðvesturhorninu. Lítil ferðaþjónustufyrirtæki upp til dala, niðri á ströndum og upp til fjalla munu lenda í því að ríkisstjórnin er að setja þetta kílómetragjald á. Við getum ekki verið að horfa í baksýnisspegilinn núna. Vissulega er þetta mál vont og hefur alltaf verið vont. Við verðum að horfast í augu við það að heildarskattsporið minnkar ef þetta mál fer í gegn. Það þýðir minni pening í sameiginlega sjóði okkar Íslendinga.