157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:20]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Frávísunartillaga þessi byggist á því að hér er verið að leggja til að taka upp flókið kerfi í stað þess kerfis sem menn þó þekkja. Það kerfi sem við höfum í dag varðandi bensín- og dísilbílana má vissulega einfalda. En þetta frumvarp og þetta mál er lagt fram með því fororði að verið sé að einfalda. Það er ekki verið að einfalda nokkurn skapaðan hlut. Eftir standa himinháir skattar, himinhá bifreiðagjöld og vörugjöld á eldsneyti. Þessi gjöld standa eftir sem áður. Hér fullyrða menn að verðlækkun á dælu í dag, sem vissulega mun gerast um einhvern tíma, muni halda um aldur og ævi og jafnvel kannski kílómetragjaldið líka sem auðvelt er að lauma inn í næsta bandormi á næsta hausti. Það er alger goðgá að hrinda þessu máli í framkvæmd eins og það er búið og þess vegna er þessi frávísunartillaga komin fram sem Miðflokkurinn hvetur til að menn styðji, að menn gefi sér lengri tíma fyrir þetta mál.