157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:23]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Ég vil til að byrja með taka fram að ég tel að hér sé ekki um neitt leikrit að ræða og ég vil hafna því að eitthvað í samráði í þessu máli hafi verið aðfinnsluvert. Það hafa borist hérna yfir 50 umsagnir, bæði þegar þetta mál var tekið til skoðunar og þegar það var flutt áður á síðasta þingi. Gestakomur í málinu hlaupa örugglega á tugum og nefndarálit og breytingartillögur sömuleiðis. Þarna hefur verið unnið mikið og vel í þessu máli. Auðvitað er ákveðinn munur sem kann að vera óbrúanlegur en ég tel að það að vísa málinu til ríkisstjórnar og láta „vinna það betur“ myndi ekki þjóna neinum tilgangi vegna þess að sá ágreiningsmunur sem liggur fyrir held ég að sé kominn fram og hann verður ekki brúaður.