kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég tek undir með hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni. Þetta er líklega eina greinin í frumvarpinu sem er tiltölulega einföld. Restin er flækjur á flækjur ofan. Í heildina verður til líklega eitthvert mesta flækjufrumvarp sem hefur farið í gegn í lengri tíma. Það sem er kannski sérstaklega athyglisvert að benda á, frú forseti, er að hér sjáum við á töflunum hvernig upptakturinn verður í afgreiðslunni á þessu máli; ótrúlega margir þingmenn landsbyggðarkjördæmanna ætla að styðja þetta mál þrátt fyrir allar þær ótrúlegu og fjölmörgu athugasemdir sem hafa borist og nánast allar voru mjög vel rökstuddar. Hér er skellt við skollaeyrum eins og oft er þegar landsbyggðin á í hlut.