157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:27]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Hér greiðum við atkvæði um grein sem fjallar um það hverjir séu gjaldskyldir aðilar. Það vill nú svo til að það var hér einu sinni kílómetragjald uppi. Það var svo flókið í framkvæmd að það var lagt af og núverandi kerfi sett á. Það eru mörg misjöfn kerfi sem hafa þróast sem eru kannski ekki öll þau einföldustu en hafa alla vega þróast í gegnum tíðina og margt planað út frá þeim, t.d. með litaða olíu og mismunandi skráningar ökutækja og annað slíkt eftir notkun. Nú er verið að rugla þessu systemi öllu. Lífdísill og íblöndunarefni munu t.d. núna vera jafn dýr og olíulítrinn er í dag, þau lækka ekki í verði við þetta en þurfa líka að fara að borga kílómetragjald. Þetta er nú bara eitt flækjustigið sem gerist nú þegar. Til hamingju, virðulega ríkisstjórn.