kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Nú fjöllum við um gjaldskyld ökutæki. Þar efst á blaði eru t.d. bifhjól, 250 kg er algeng þyngd. Þau eru að fara að greiða jafn mikil kílómetragjöld og bíll með 3.500 kg leyfða heildarþyngd. Jú, þau eru vissulega léttari en þá er sagt: Já, það er viss þjónusta á vegunum sem þarf líka að borga fyrir. Þau ætla að láta bifhjólin borga fyrir vetrarþjónustuna líka. Nei, núverandi kerfi tekur á þessu. Það er borgað eftir notkun miðað við notkun olíugjaldsins og þyngdina og annað slíkt. Hér er enn eitt ruglið sem er búið og við erum bara komin í 3. gr., virðulegur forseti.