157. löggjafarþing — 48. fundur, 15. des. 2025.
kílómetragjald á ökutæki.
144. mál
Frú forseti. Það er ánægjulegt þegar það verður svo að tappinn sé tekinn úr eyrunum og að á sé hlustað og því ber að fagna. Við í Framsókn styðjum þetta að sjálfsögðu, enda er algerlega augljóst að í þessu tilliti er fyrst og fremst verið að tala um ökutæki sem enda sína starfsævi annars staðar en á vegi og eru mest utan vegar. Þannig að það er mjög eðlilegt að tappinn hafi verið tekinn úr eyrum meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar, hvað þá ríkisstjórnarinnar.