157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:41]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég ætlaði nú ekki að koma hingað upp í hverri einustu grein en í þetta skipti með 7. gr. Þarna kemur í ljós enn einn gallinn á þessu frumvarpi, enn ein flækja. Í þessari grein er t.d. ekki gert ráð fyrir að ökumælar séu löggiltir. Menn sem þekkja til í þessum bifvélageirum segja að það séu 66 aðferðir til að skjóta sér undan réttri kílómetrastöðu, þ.e. breyta kílómetrastöðu. Ef rétt er, ætlar ríkisstjórnin að setja upp sérstaka álestrarlöggæslu til að elta fólk uppi? Þetta veikir auðvitað samkeppnisstöðu hinna sem fara eftir lögum og vilja greiða sína skatta og skyldur. En þetta eru auðvitað ólöggiltir mælar, tölvumælar, sem ég heyri víða að sé auðvelt að breyta.