157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:44]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um grein sem fjallar um álagningu og innheimtuna í þessu; að þeir sem eru duglegir að skrá inn megi bara skrá á 30 daga fresti og ef þeir hafa keyrt meira þessa 30 daga heldur en vanalega þurfi þeir að borga Skattinum álag. Þeir gátu samt ekkert skráð aksturinn strax inn en þurfa samt að borga álag af því að það er rukkað eftir á, sem er ekki sanngjarnt. En annað í þessu: Innheimtan fer þannig fram að yfir 300.000 ökutæki fá sendan á sig greiðsluseðil sem kostar bara kerfislega 34 kr., fyrir utan 10–12 kr. sem það kostar að færa hann í bókhaldskerfi hvers fyrirtækis og annað slíkt. Það er verið að bæta við, held ég, hátt í 300 milljónum inn í innheimtukerfið bara til þess að stækka báknið við innheimtuna á þessu til þess að framkvæma þetta mál hérna.