157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:47]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Í þessari grein er fjallað um daggjaldið. Þegar núverandi lögum um kílómetragjald á rafbíla og tengiltvinnbíla var komið á var ekki gert ráð fyrir daggjaldi fyrir bílaleigur. Þegar síðasta starfsstjórn lagði fram frumvarp um kílómetragjald var gert ráð fyrir daggjaldi en það var gert ráð fyrir að bílar þyrftu að vera í daggjaldskerfinu í alla vega þrjá mánuði. Á síðasta þingi lagði efnahags- og viðskiptanefnd til að sá tími yrði styttur í einn almanaksmánuð. Nú er gerð sú tillaga að lágmarkstíminn styttist í 15 daga. Þessi tillaga er ívilnandi fyrir bílaleigur og ég hvet þingheim til að styðja hana.