kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Hér erum við að ræða um daggjald fyrir bílaleigur. Þótt ég geti vissulega fagnað þeirri breytingu sem lögð var fram hér af meiri hluta nefndarinnar, að færa þetta úr 30 dögum í 15, þá er það mat mitt eftir að hafa hlustað á bílaleigurnar, þær fjölmörgu bílaleigur sem komu fyrir nefndina, og átt samtöl við aðila úr þeim geira og ferðaþjónustunni að þetta sé því miður ekki nægilega langt gengið. Ég hefði viljað gefa bílaleigunum miklu meira svigrúm til að ráðstafa þessu sjálfar upp á tímann, jafnvel bara frá degi til dags. Það hefði klárlega komið til móts við bílaleigurnar og gert þetta frumvarp betra fyrir þær heldur en það er í dag.