kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Hér greiðum við atkvæði um grein sem segir að gjaldskyld ökutæki skuli vera búin virkum akstursmæli en það er ekkert talað um gæði þessa akstursmælis. Það er bara gert ráð fyrir því að þegar ökutæki er nýtt þá sé þetta gerðarviðurkenndur mælir sem má vera með vissum vikmörkum. En hvað með ökutæki sem eru komin til ára sinna eða búið er að breyta hjólabúnaði, dekkjastærð eða öðru slíku? Það er margt svona sem mun vera mjög óljóst í þessu.
Svo er líka annað sem ég vildi koma inn á. Í dag er greitt samkvæmt þeim lítrum sem þú dælir á ökutækið en þarna er það eftir akstrinum. En um áramót, þegar skilin verða, munu um 25.000 ökutæki bílaleignanna vera full af eldsneyti sem hafa nú þegar greitt olíugjöld. Á nýju ári munu ökutæki bílaleignanna því greiða tvöfalt.