kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Hér er enn ein flækjudellugreinin. Það hefur margsinnis verið bent á það í umfjöllun um þetta mál að þessir akstursmælar sem eiga að notast sem mælitæki fyrir innheimtu ríkisins séu ekki mælar sem hafa farið í löggildingu eins og tíðkast um mæla í t.d. atvinnubifreiðum. Engu að síður er í þessari grein kveðið skýrt á um að eigandi ökutækis beri fulla ábyrgð á því að mælirinn telji rétt. Ég hef margspurt í þessum sal í þessari umræðu um hvort stór hluti þjóðarinnar hafi raunverulega forsendur til að meta hvort það sé skekkja í mælinum sem verið er að nota til að innheimta eftir. Engin svör hafa fengist, frú forseti. Þessi grein er ónýt eins og ónýtt getur orðið.