157. löggjafarþing — 48. fundur, 15. des. 2025.
kílómetragjald á ökutæki.
144. mál
Frú forseti. Þegar ég sé svona tölur, að sektir geti numið allt að 100 millj. kr., þá á ég svolítið erfitt með að ímynda mér hver gæti brotið svo gífurlega af sér að hann eigi skilið að fá 100 millj. kr. sekt fyrir að skrá ekki kílómetrastöðu. Af hverju ekki 500 milljónir? Af hverju eru menn svona litlir í sér? Af hverju ekki 500 eða 1.000 milljónir? Ég segi nei.